Anndental
Við höfum verið eigendur nútímalegrar tannsmíðastofu í 20 ár. Við erum í samvinnu við margar tannlæknastofur í Gdańsk.
Við þekkjum mjög vel tannlæknamarkaðinn í Gdańsk og þess vegna bjóðum við upp á samstarf við þrjár leiðandi stofur sem tryggja hæstu gæði og á sama tíma hagstæð verð.
Þessar stofur bjóða upp á meðferð samkvæmt evrópskum stöðlum, hafa ISO 9001 vottun og hæfa starfsmenn sem tala ensku.
Allar stofurnar eru útbúnar nýjustu lækningatækjum: Computer Assisted Tomography Scanner, Clear Aligner Orthodontics, Panoramic X-RAYs, Endodontics Microscopes.
Við tryggjum ykkur sömu verðin og pólsku sjúklingarnir borga sem gerir ykkur kleift að spara allt að 70% á brosinu ykkar.
Hafðu samband við okkur gegnum spurningaform á vefsíðunni, tölvupóst eða síma. Skrifaðu hvaða væntingar þú hefur og hvenær þú myndir vilja koma. Sendu okkar læknaskýrslurnar þínar (röntgenmyndir) og við munum svara eins hratt og auðið er.

1. Við munum senda þér tilboð og áætlaðan kostnað við meðferð, stinga upp á hótelum fyrir þig og koma með uppástungur hvað þú getur gert í frítímanum.

2. Taktu ákvörðun hvenær þú vilt koma til Gdańsk.

3. Aðstoðarmaður okkar nær í þig á flugvöllinn og keyrir þig á tannlæknastofuna. Þú færð ókeypis síma frá okkur svo þú getir haft samband við aðstoðarmanninn og tannlækninn.

4. Á stofunni ferðu í skoðun og færð meðferðar- og kostnaðaráætlun.

5. Þegar þú hefur samþykkt kostnaðaráætlun getum við hafið meðferð.

6. Eftir heimsókn á stofunni keyrir aðstoðarmaðurinn þig á hótelið sem þú valdir.

7. Á meðan þú ert í Gdańsk og bíður eftir næstu heimsókn á stofuna getur þú látið tímann líða notalega og aðstoðarmaður okkar mun stinga upp á nokkrum hugmyndum: verslunarferðir, veitingastaðir, spa-wellness eða skoðunarferð um Gdańsk. Þú ákveður sjálfur hvað þú vilt gera.

8. Eftir síðustu heimsóknina keyrum við þig á flugvöllinn.

9. Þú kemur heim með nýtt fallegt bros.

Trójmiasto er borgaklasi sem samtals telur um eina milljón íbúa. Trójmiasto mynda: Gdańsk, Sopot og Gdynia. Hver þessara borga er önnur og býður upp á aðra möguleika. Við getum hjálpað þér að kynnast þessum stöðum á meðan þú er í Póllandi.