Skoðunarferðir um Trójmiasto (Þríborgin)

Anndental

Við hvetjum þig til að kynna þér hvað Trójmiasto hefur upp á að bjóða á sviði menningar og afþreyingar.
Trójmiasto er borgaklasi sem samtals telur um eina milljón íbúa. Trójmiasto mynda: Gdańsk, Sopot og Gdynia. Hver þessara borga er önnur og býður upp á aðra möguleika. Við getum hjálpað þér að kynnast þessum stöðum á meðan þú er í Póllandi.
Trójmiasto býður upp á fjölda möguleika fyrir ferðamenn. Þú getur valið milli fornfrægra bygginga, afslöppunar á ströndinni, sýninga á söfnum eða skemmtunar fyrir alla fjölskylduna.

Gdańsk

Gdańsk

Gdańsk er yfir 1000 ára gömul borg sem er álitin hafa flestar söguminjarnar í „Eystrasalts-Evrópu“. Flestar þessara sögulegu bygginga liggja við glæsilegustu gönguleið Aðalbæjarins þ.e. við Kóngaveginn og einnig í nærliggjandi strætum og við göngugötuna við ána Motława sem nefnd er Langa strandlengjan (Długie Pobrzeże).

Sopot

Sopot

Sopot er borg með einstaka landafræðilega legu. Borgin er óvenju fallega staðsett: einu megin er hún umlukt af Trójmiejski þjóðgarðinum og hinu megin umkringja hana strendur Gdańsk-flóans. Hér finnur þú yfir 250 veitingastaði og bari, þú getur notið þess að láta tímann líða og þér mun örugglega ekki leiðast. Þetta einstaka andrúmsloft, staðsetningin og möguleikar á skemmtanalífi gera það að verkum að Sopot er mjög vinsæl meðal ferðamanna og íbúa Trójmiasto.

Gdynia

Gdynia

Gdynia eru ung hafnarborg í örum vexti sem sameinar viðskipti, verslun, ferðamennsku og skemmtanalíf. Í Gdynia fer fram ein af stærstu tónleikahátíðum í Evrópu, Open’er Festival.

Við getum boðið viðskiptavinum okkar upp á breitt úrval hótela, frá ódýrum en þægilegum til bestu fimm stjörnu hótelanna í Gdańsk.

Þú getur sjálfur ákveðið hvar þú viljir eyða frítíma þínum, hvort það sé í miðborg Gdańsk skammt frá helstu söguminjum og aðal kennileitum borgarinnar eða í lúxus spa við sjávarsíðuna í strandbænum Sopot.
Alle Hotels sind nicht weit von unseren Kliniken entfernt.
Öll hótel eru staðsett ekki langt frá stofunum okkar.
Ákveddu sjálfur hvar þú vilt slappa af.

 

Anndental
ul. Jaśkowa Dolina 45
80-262 Gdańsk
Pólska